hehe.. :pBerglind Björk Viðarsdóttir

hehe jájá ásta mín ég veit... hehe það er soldið síðan ég bloggaði og ég byrjaði að reykja sama dag og ég skrifaði bloggið... hehe Ullandi 

En allavega ég er í bænum núna og er að skoða bíla og reyna að festa kaup á einn.. sem ég vona að ég nái að gera! Ullandi  en ég verð komin til eyja í síðasta lagi á morgunn.. því það er svo vont veður í dag..

En þessi markmið sem ég setti mér.. humm... já ég held að ég nái ekki að standa við neitt af þeim þvíþað eru þegar 2 fallin hjá mér.. Ullandi hehe...  en það skiptir ekki máli.. ég ætla að sjá til hvernig helgin verður, hvort ég verði edrú eða hvað.. þetta kemur allt í ljós..

En ég bið að heylsa ég nenni ekki þessu blogg kjaftæði.. Óákveðinn

Ciao B.Bj.

jæja þá er átak í gangi...Berglind Björk Viðarsdóttir

hæhæ jæja þá er maður bara enn hérna uppá kárahnjúkum... en þetta fer að verða búið það er kanski svona mánuður eftir eða svo...  ég held að það verði síðan bara stefnt á að fara í bæinn..

En ég ætla aðeins að fara að taka mig saman í andlitinu núna og ég er hætt að drekka framað áramótum, hætt að reykja forever og hætt þessu kallaveseni á mér.. Ullandi  hehe.... jæja ætli að ég geti þetta allt saman...  huhumm allavega ekki eitt af þessu.. hvað ætli það sé... Ullandi  hehe

en mig er nú samt helvíti mikið byrjað að langa í sígó...  ég er alltaf svo hrædd um að fitna og eitthvað rugl útaf eftir að ég byrjaði að reykja fór ég loksins niður fyrir 60kg sem ég hafði ekki gert í meira en 2 ár eða fleiri!!!  æji marr sér til hvað ég geri... Óákveðinn en ég er á 4 degi...  æji skiptir ekki öllu þetta kemur í ljós... en ég varð alveg GEÐVEIK í skapinu í gær marr og mig langaði að fara inní herbergi og garga og gráta ég var svo pirruð!! þetta er bara útaf þessu reyk dóti!

En allavega þá veit ég ekkert hvað ég á að gera í fríinu hvort ég ætti að fara í bæinn og ath með bíl og leita mér að vinnu... eða fara til eyja... humm... segið þið mér Glottandi hehe...

En ég hef ekkert fleira að segja en endilega verið dugleg að láta heyra í ykkur

Ciao B.Bj.

sjæturinn helgin afstaðin...Berglind Björk Viðarsdóttir

jæja þá er þessi helgi búin og mín er klár á að fara bara aftur uppá kárahnjúka Ullandi hehe... neinei segi bara svona...  veit nú eiginlega ekki alveg hvernig það verður þegar ég fer uppeftir aftur... shit.. en jæja skiptir ekki máli...

En allavega á föstudaginn kom ég um hálf 10 um kvöldið og fór Ég, Tinna og Arna heim til Örnu og drukkum okkur blind fullar... eða allavega ég..Ullandi hehe... kanski aðeins of.. en síðan fórum við á Dj Lucca og það var algjör snilld sko! það sem ég man... Ullandi  verð eiginlega að viðurkenna það að ég man nú voðalega lítið frá föstudagskvöldinu... en ég veit það allavega að töskunni minni var stolið... (týndist fyrst og síðan stolið...) og í töskunni minni var bókstaflega ALLT !!! gleraugun mín, síminn minn, peningaveskið með kortunum mínum og því öllu og síðan eitthvað fleira... þannig að ég er orðin blind með engann síma Gráta  en það þýðir nú ekki að væla yfir því...

Á laugardaginn var ég ógeðslega þunn!!!  ég ætlaði að kíikja í Afmælið hennar Agnesar en ég var bara svo ógeðslega þunn og gat varla hugsað... en það endaði nú með því að mín fór nú á djammið og í bæinn...  og ég ætlaði að fara að hitta vinnuliðið á Hressó.. neinei mín komst ekki inn því ég var ekki með skilríki.!!! okei þannig að ég ætlaði á Pravda og hitta stelpurnar NEI mín komst ekki inn útaf ég var ekki með skilríki!!! Öskrandi  shit hvað ég var ógeðslega pirruð!!!  hef eiginlega aldrei þurft að sýna skilríki áður en síðan allt í einu núna... en Haffi og Jón Ægir komu með mér og Bjössa á einhvern stað og vorum þar alla nóttina og síðan fór ég til Haffa, Valda og Tinnu uppá hótelherbergi og vorum þar...  um morguninn.. 

Já þessi helgi var frekar skrautleg hjá mér og ég endaði í eyjum í gær ákvað bara allt í einu að fara til eyja og koma hausnum á mér í lag.. En ég fer aftur uppá kárahnjúka á föstudagsmorgninum en fer héðan á fimmtudeginum...

Ciao B.Bj.

jæja þá er það bara Dj Lucca!Berglind Björk Viðarsdóttir

hæhæ það er nú orðið frekar langt síðan ég bloggaði síðast... en ég er bara búin að vera í vinnunni hérna uppá kárahnjúkum.. ég og Arna erum búnar að fara í gufu eiginlega á hverjum einasta degi í 2 tíma eða eitthvað á kvöldin með bjór Ullandi þótt það meigi nú ekki en... hver spyr nú um leyfi.. not me!  hehe...  en síðan í gær fór ég yfir í Arnafell og hitta hann Tomma vin minn frá króknum og það var rosa nice að komast aðeins útúr búðunum hérna...

En á morgunn verður haldið suður á Dj Lucca og það verður sko tekið almennilega á því... Ég, Arna og Tinna ætlum okkur að kíkja og síðan fleiri sem marr á bara eftir að hitta þarna, síðan á laugardaginn ætlum við stelpurnar að fara í laugar í gufuböð og þess háttar og vonandi nudd... og síðan um kvöldið fer ég í afmælið hjá henni Agnesi minni og verður farið út að borða og djammað... veit samt eiginlega ekki alveg hvort ég eigi að vera í bænum um kvöldið eða hvort ég eigi að fara til Keflavíkur því hún elma verður í bænum og síðan er öll B vaktin að fara að djamma líka og eitthvað þannig að það er allavega margt um að velja... æji þetta kemur bara í ljós... síðan í vikunni þá ætla ég kanski að fá mér mitt annað tattoo Ullandi  en það fer nú samt alveg eftir því hvað ég á eftir að eiða miklum pening um helgina og svona þannig að ég er ekki alveg viss en það kostar um 24 þús...

En allavega hef ekkert annað að segja en ég verð í bandi við ykkur í fríinu og ég ætla að skemmta mér ógeðslega vel núna...

Ciao B.Bj.

Komin aftur uppá kárahnjúkaBerglind Björk Viðarsdóttir

Jæja þá er mín komin aftur uppá Kárahnjúka sem er bara mjög fínt fyrir utan það að ég var með ælupest í gær og hita núna... Gráta  en ég ætla að fara að vinna á morgunn...  en allavega þá var helgin ágætis í fríinu.. á föstudeginum djammaði maður fyrir mánuðinn sem marr var búinn að vera edrú, ég byrjaði heima hjá Hildi með henni og Beggu og síðan kíkti Bjössi, Keli og Siggi á okkur og við kíktum á Drífanda og eitthvað party eftir það og eitthvað en þetta var bara mjög skemmtilegt djamm fyrir utan þessa pabba sem voru að reyna við mig !!!  Öskrandi  hvað er þetta með mig og þessar lessur og pabba!!!  ég skil þetta bara ekki...  en já svona er þetta bara...  en á laugardaginn var ég með ælupest og var bara föst heima hjá Kela þar og reyndi eins og ég gat til þess að fara aftur á djammið en það var bara ekki séns...  sem ég var reyndar ánægð með daginn eftir.. Ullandi  en ég held að ég fari í bæinn eða til Keflavíkur í næsta fríi því ég ætla að fara að reyna finna einhverja íbúð og vinnu..

hey já ég var að lesa stjörnuspána mína áðan fyrir daginn í dag ( 25.10.06 ) og þar stendur að ég sé að fara verða ástfangin...  Óákveðinn  humm...  shit.. líst ekki alveg nógu vel á þetta ef ég á bara að segja eins og er...  en ég meina hvað er að marka þær!!  neinei fanst þetta bara findið og ákvað að deila þessu með ykkur...

Ciao B.Bj.

eyjan...Berglind Björk Viðarsdóttir

Jæja þetta frí er einhvernveginn búið að vera leiðinlegt... mér leiðist geðveikt hérna!!!  ég er búin að vera uppá fjöllum í 24 daga og mér leiddist ekki einn dag þarna...  en æji þetta kemur í ljós hvernig helgin verður...  en ég enda hérna á eyjunni allavega.. ég keypti mér föt í gær fyrir 30 þús.. Ullandi  aðeins til þess að gleðja mig... Ullandi hehe...  en allavega ég er búin að vakna heavy snemma alla dagana nema núna náði ég að sofa til hálf 10 með því að vakna svona 100 sinnum!!   hehe...  en allavega næsta í næsta fríi þá ætla ég að vera í bænum.. og ef ég tek ekki auka þá förum við stelpurnarog einhverjar vinkonur Agnesar að út að borða því skvízan á afmæli þá Glottandi  Agnes ég læt þig vita hvernig þetta verður eins fljótt og ég get Glottandi 

En allavega þá verður þessi helgi bara vonandi fín...  það eru allavega 3 að koma í bæinn meðan allir hinir eru að fara... haha.. Hlæjandi  jájá við gerum bara gott djamm úr þessu eða hvað sem maður gerir...

En ég læt ykkur vita hvernig verður ég læt heyra í mér seinna...

Ciao B.Bj.

FRÍ FRÍ FRÍ !!!Berglind Björk Viðarsdóttir

jæja þá er ég loksins komin í frí !!!  búin að vera þarna uppfrá í 24 daga !! en ótrúlegt en satt þá eiginlega sakna ég þess smá að vera ekki þarna uppfrá.. Óákveðinn  hehe ég veit að ég sé skrítin...  en maður var einhvernveginn alltaf að tala við einhvern og núna er bara Sigrún og Kolla sem eru hérna eftir á eyjunni sem ég þekki... þannig að þær fá að hlusta á mig meðan ég er hérna.. ég veit samt að Sigrún þolir það alveg hehe... Glottandi en allavega þá er ég að fara í strípur í dag.. ég er komin með ÓGEÐ af hárinu á mér..!!!  og síðan ætla ég í plokk og lit á fimmtudaginn... og eitthvað ég ætla aðeins að dekra mig meðan ég er hérna.. Ullandi  ég held að það sé nú í lagi.... síðan er ég að vonast til þess að sem flestir komi til eyja frá kárahnjúkum svo við getum nú öll djammað saman og kinnst betur.. það verður bara fjör sko!! 

En já shit ég vaknaði klukkan 9 í morgun og gat ekki sofið lengur og þá var ég búin að vakna svona 40 sinnum!!!  ég sem ætlaði að sofa út!!! 
En ég bið að heilsa ykkur í bili

Ciao B.Bj.

kem heim eftir 3 daga!!!Berglind Björk Viðarsdóttir

jæja þá eru 2 og 1/2 vakt eftir og djöfull hlakkar mér til !!!  það verður feitt djamm næstu helgi!!!  eða eftir viku !  hehe en allavega þetta er búið að vera mjög fínt hérna hjá mér og búið að vera fljótt að líða ég er búin að vera hérna í 21 dag...  en það er ekkert að frétta af mér annars...  en mig hlakkar geggjað til þess að koma heim í rúmmið mitt og hitta fólkið og solleiðis..  en ég bið að heilsa ykkur og kolla það er eins gott að þú farir ekki í bæinn akkurat þessa helgi!!!

Ciao B.Bj.

jæja þá eru 10 vaktir eftir!Berglind Björk Viðarsdóttir

Jæja 10 vaktir eftir á þá kemur maður á eyjuna fögru !!!  shit það verður allavega eitthvað djamm... því ég verð þá búin að vera edrú í mánuð! shit hvenar gerðist það eiginlega síðast!!!  hahahahaha allavega gerist það ekki meðan maður býr í eyjum það get ég allavega sagt Hlæjandi  en allavega mér líkar bara mjög vel hérna tíminn er fljótur að líða og solleiðis... síðan var ég að komast að því að ég þekki einn annann hérna og það er hann Emil vinur minn ég hafði ekki hugmynd um það að hann væri að vinna hérna... og mig hlakkar ekkert smá til að hitta hann, hann kemur á mánudaginn Glottandi  hann er notla mesti snillingur sem ég þekki!  en allavega hef ég voða lítið að segja nema það að það eru komnar 2 kjaftasögur um mig hérna...!  halló ég er búin að vera hérna í 13 daga! en önnur er ÓGEÐSLEG! hún er sú að ég eigi að vera búin að vera með einum KALLI hérna!! okei hann er um 45 ára eða eitthvað og hann á börn og er giftur og hann er ógeðslegur perri þessi kall... þannig að OJJJ! en hinni kjaftasögunni hlæ ég nú bara af... en þar á ég að hafa verið með einum strák hérna sem getur bara ekki einu sinni passað því hann var á næturvakt og ég á dagvakt..! hahaha æji maður er heppinn að hafa búið í eyjum því þa er maður allavega vanur þessu Hlæjandi  en þetta er eina slúðrið sem ég hef.. haha...  en endilega verið í bandi og segið mér eitthvað slúður Glottandi 

En ég bið að heilsa í bili og Sigrún mig hlakkar til að koma til eyja og það er eins gott að þú djammir með mér !!! ( I know you do )  Svalur

Ciao B.Bj.

shit hvað ég var mikil gella í dag marr!!!Berglind Björk Viðarsdóttir

jæja þetta er búinn að vera fínn tími hérna uppfrá... ég er búin að fara nokkrusinnum út að hlaupa hérna og fór síðan uppá kárahnjúkafjallið um daginn sem var bara snilld !!!  núna get ég farið uppá heimaklett hehe...  Hlæjandien allavega ég var geðveik gella í dag! ég keyrði geðveikt stóra vel í dag sem bara dekkin eru jafstór og bíllinn sem ég er að keyra um á núna!!!  haha þetta var bara snilld sko!  ég er samt með heavy stórann marblett eftir þetta því ég kunni ekkert á þetta tæki og beigði of harkalega... Ullandien já ég er annars bara að bíða eftir B vaktinni (vaktinni minni) þá getur maður eitt tímanum með þeim allavega... 

jæja annars hef ég mjög lítið að segja verið bara dugleg að vera í bandi því mér finnst mjög gaman að tala í síma meðan B vaktin er í burtu  Ullandi og verið dugleg líka að segja mér frá einhverjum kjaftasögum..

Ciao B.Bj.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hvernig lýst ykkur á það að ég flytji til kefl. ?

Leikur dagsins

Leit